Pár

Árið 2007 kom út eftir mig lítil ljóðabók. Hún hafði fyrst og fremst einhvers konar meðferðargildi fyrir mig sjálfan og er nú ófáanleg. En fáeinar aðrar, slíkar sem þær eru, fylgdu í kjölfarið á einhverju fyrra tilveruskeiði.

Með villidýrum (Nýhil, 2008)

Með villidýrum ljóðabók Kári Páll Óskarsson

Ljóðabók. Ungæðisleg. Enda var ég ungur. Einhverjir voru ánægðir með hana. Hlaut á sínum tíma nýræktarstyrk Bókmenntasjóðs og fjórar stjörnur í Lesbók Morgunblaðsins.

Gáttir (Nýhil, 2008)

Gáttir Ljóðabók Kári Páll Óskarsson

Ég var fenginn til að ritstýra þessu safnriti sem gefið var út samhliða alþjóðlegri ljóðahátíð Nýhils árið 2008 og hefur að geyma ljóð hátíðargesta bæði á frummálunum og í þýðingum. Margt hæfileikafólk kom að gerð bókarinnar og lagði í hana mikla vinnu. Ég held að það hafi tekist nokkuð vel til. Að minnsta kosti uppskar hún fimm stjörnur frá ljóðlistarrýni Fréttablaðsins, ef mig misminnir ekki.

Af steypu (Nýhil, 2009)

Af Steypu ljóðasafn

Síðuhaldari var meðritstjóri þessa metnaðarfulla yfirlitsrits um framúrstefnuljóðlist, með áherslu á tungumálið sem efnivið eða efnisleika tungumálsins. Þar undir fellur meðal annars konkret- og önnur myndljóðlist. Ritið inniheldur einnig nokkurt magn fræðigreina, bæði frumsaminna og í þýðingu. Gagnrýnandi Kiljunnar var lítt snokin fyrir „vitleysunni“.

Ekkert tekur enda (Deigma, 2015)

Ekkert tekur enda  ljóðabók kári páll óskarsson

Ljóðabók. Útgefandi: Deigma. Nýtt upphaf, leit að nýjum tjáningarmátum. Hringir hnitaðir um fyrirbærið „pólitísk ljóðlist“. Titillinn hugsaður sem vísun í hin svokölluðu endalok sögunnar, sem lýst var yfir á 10. áratug síðustu aldar eins og frægt er orðið. En sagan hafði víst ekki alveg sungið sitt síðasta. Hálfgerð leynibók: Hvorki höfundur né útgefandi nenntu að koma eintökum til fjölmiðla.

Annað

Einnig hafa orðið til greinar, ritdómar, pistlar og aðrar styttri ritsmíðar sem birst hafa meðal annars í Tímariti máls og menningar, í útvarpsþættinum Víðsjá á Rás 1, á starafugl.is og víðar.